Sunday, March 25, 2012

Einmitt það sem ég ætla að fara að gera á þessum fallega sunnudegi :)

Ég ELSKA sunnudaga :) Þá byrjar hollustan aftur eftir sukkið í gær og þá líður manni svo vel með sjálfan sig :) Ekkert er líka betra en próteinbættu spelt-lummurnar mínar með sykurlausri sultu í morgunsárið :) Ég finn þvílíkan mun á mér og vigtinni eftir að ég hætti að neyta mjólkurvara - skipti mjólkinni út fyrir sojamjólk og rísmjólk og er mun hressari og vigtin fer mun hraðar niðurá við :) Missti 1 kg í síðustu viku, fékk að vita það í eftirfylgninni á föstudaginn - ég lofaði víst að láta ykkur vita :) 

Ég vil líka minna á það að ég býð viðskiptavinum mínum uppá 100% eftirfylgni ! Ég bý til matarprógram , æfingaprógram, fer yfir hvernig á að nota Herbalife vörurnar og sendi uppskriftir og fræðslubæklinga :) Fyrir borgarfólkið býð ég einnig uppá mælingu, vigtun og fituprósentu mælingu :) 

Mér finnst þetta sjálfri svo rosalega spennandi að fá tækifæri til að hjálpa öðrum á meðan ég vinn í sjálfri mér og deila öllu því sem ég er búin að læra :) 

Minni á Weight loss námskeiðið sem byrjar 2.apríl uppí mjódd - þetta er sjúklega góð fræðsla og verðlaunin eru ekki af verri endanum! :)

En jæja, nú ætla ég að skella mér í gymmið og hlaupa kannski eina 7km, kannski næ ég 8km eftir þessar spelt-lummur mínar enda bara holl kolvetni sem veita súper orku :)

Vara vikunnar er klárlega HYDRATE ! :) Bjarki gerði tilraun, því hann hefur ekki trú á dufti í neinu formi svo hann ákvað að taka með sér hydrate á körfuboltaæfingu og gekk bara vel og afkastagetan var mjög góð (enda unnu þeir leikinn og komust áfram í undanúrslit!) og svo á síðustu æfingu ákvað hann að prufa að sleppa að drekka hydrate og þá fékk hann bara magakrampa og þurfti að stöðva leikinn þrisvar sinnum og var alveg ónýtur.... Eins og ég hef alltaf sagt, geðveikur drykkur ;)


Þangað til næst
Kolbrún




No comments:

Post a Comment