Hæhæ!
Langt síðan að ég hef skrifað hérna inn!... Nú er ég búin að bæta við öðru barni í safnið og missti aðeins fókusinn í lífsstílsbreytingunni á meðan því stóð (veit ekki alveg af hverju, en það gerðist bara, því miður!)... Nú hef ég byrjað aftur og árangurinn lætur ekki á sér standa (eins og ég vissi, þessar vörur auðvitað bara sneeeld) :) Komin í sama formið, jafnvel betra en það var fyrir meðgöngu og það aðeins á 3 mánuðum! Skellti mér á eitt átaksnámskeið og missti 8.5 kg og 40cm á 6 vikum :) Fékk peningaverðlaun fyrir það eitt að borða hollt, hver getur ekki þegið það? :) ... Ég ætla klárlega aftur á svona námskeið og rífa þá niður fituprósetnuna, hlakka mikið til :) Hef líka ákveðið að byrja á fullu í ræktinni aftur eftir áramót, alltaf gott að fá smá me-time og nota það í ræktina :) ... Hverjir eru memm í námskeið og ræktina? :) Langar mikið að fara tl einkaþjálfara og það væri súper að geta haft einhvern með í það til að dreifa kostnaðinum! :) Það er alltaf gaman að gera svona hluti saman, meiri stemmari og betri árangur :) ... Ég ætla líka að vera dugleg núna að gera lífsstílsmat á fólki, það er svo gaman að geta hjálpað öðrum :) Ekki hika við að hafa samband ef ykkur langar að taka eina slíka skýrslu, tekur enga stund og maður fær að vita stigin sín og stöðu :)
Munið að hérna til vinstri má sjá flestar Herbalife vörurnar, það er komin ný bragðtegund í sjeiknum (Piparmyntu og súkkulaði) svaka góður með frosnum banana blandað í mjólk :) Svo er snyrtivörulínan ódýr og mjög góð :) Ég tala nú ekki um Rebuild Strength sem hjálpar fituprósentunni að hendast niður þó maður fari ekki í ræktina :)
Hér er mynd af mallanum mínum eftir að ég átti Emil karlinn og svo núna (3 mánuðir), -10 kg, án þess að fara í ræktina, allt matarræðið!! :)
Knús :*
Ykkar einlæg
KollaHall
kolbrunhalldorsdottir@gmail.com
8612136
Kolla Hall
Wednesday, November 27, 2013
Tuesday, April 10, 2012
Friday, April 6, 2012
Niður um 3.5 % fitu á einni viku !! :)
Ég skrapp í vigtun í gær, var voða dugleg, hjólaði úr Eggertsgötunni alveg útað Glæsibæ! :)
Mér fannst ég búin að standa mig svo vel alla vikuna! Þó ég hafi misst mig aðeins á afmælinu mínu, en maður á nú bara afmæli einu sinni á ári! :) Svo ég var þar af leiðandi alveg tilbúin til að taka við -1kg vigtartölunni... en nei... NEI.... það stóð +0.5kg ... og ég bara nei COMMON!.... Leiðbeinandinn minn reyndi að hughreysta mig með því að hrósa mér fyrir að vera búin að missa 3.5% fitu á einni viku! Ég hlustaði ekkert á það, enginn tekur mark á þeirri tölu, ég barðist við tárin og hjólaði grenjandi heim, staðráðin í að panta mér pizzu!...
Þegar heim var komið pantaði ég pizzu, afpantaði, fór í útifötin og skónna, var á leið í 10-11 að kaupa nammi, snéri við, pantaði pizzu, afpantaði - að lokum fékk ég mér próteinbar og fór að sofa, virkilega reið við líkamann minn fyrir að vera svona leiðinlegur við mig!
En sú vitleysa!... Ég vaknaði með uppljómun!... Hvað er eiginlega að mér?... Er ég búin að gleyma öllu sem sagt er um að vöðvar séu þyngri en fita? ... Er ég búin að gleyma að vöðvar brenna fitunni? ... Er ég búin að gleyma hvernig ég reif í lóðin eins og vitleysingur alla vikuna, þar til vinstri öxlin sagði STOPP NÚ? Er ég búin að gleyma að ég fór í 90mín páskaspinning sem hefur greinilega skilað sér í massívari lærvöðvum og að vinstra hnéið sagði "guð sé lof að líkamsræktarkortið er útrunnið"?
Gleymt er þegar gleypt er
Nú hætti ég þessu rugli, býð vöðvana mína velkomna og bið þá endilega að dvelja sem lengst þó þeir ýti tölunni á vigtinni upp um stund.
Nú er ég samt að fara í 1 og 1/2 vikna pásu í ræktinni þar til ég byrja á námskeiði. Þá verður matarræðið að vera 100%. Ég er búin að setja saman þriggja vikna plan af flottu matarræðið sem á að hjálpa mér að ná mínum markmiðum. Inní þessu plani er auðvita sukkdagur sem verður tekinn með stæl á sunnudaginn. Ætla ég þá að fara að grenja þegar vigtin fer upp og fituprósentan hækkar, eftir þann dag? uuu Nei... hvað ætla ég að gera?... HALDA ÁFRAM
Þó að stundarbrjálaði grípi mann af og til þá er maður alltaf svo himinlifandi daginn eftir þegar maður ákvað að breyta rétt :)
Nú verður lærdómurinn keyrður í BOTN með gúrku, te og próteinbör við höndina :)
Njótið lífsins
þangað til næst
Tuesday, March 27, 2012
Sunday, March 25, 2012
Einmitt það sem ég ætla að fara að gera á þessum fallega sunnudegi :)
Ég ELSKA sunnudaga :) Þá byrjar hollustan aftur eftir sukkið í gær og þá líður manni svo vel með sjálfan sig :) Ekkert er líka betra en próteinbættu spelt-lummurnar mínar með sykurlausri sultu í morgunsárið :) Ég finn þvílíkan mun á mér og vigtinni eftir að ég hætti að neyta mjólkurvara - skipti mjólkinni út fyrir sojamjólk og rísmjólk og er mun hressari og vigtin fer mun hraðar niðurá við :) Missti 1 kg í síðustu viku, fékk að vita það í eftirfylgninni á föstudaginn - ég lofaði víst að láta ykkur vita :)
Ég vil líka minna á það að ég býð viðskiptavinum mínum uppá 100% eftirfylgni ! Ég bý til matarprógram , æfingaprógram, fer yfir hvernig á að nota Herbalife vörurnar og sendi uppskriftir og fræðslubæklinga :) Fyrir borgarfólkið býð ég einnig uppá mælingu, vigtun og fituprósentu mælingu :)
Mér finnst þetta sjálfri svo rosalega spennandi að fá tækifæri til að hjálpa öðrum á meðan ég vinn í sjálfri mér og deila öllu því sem ég er búin að læra :)
Minni á Weight loss námskeiðið sem byrjar 2.apríl uppí mjódd - þetta er sjúklega góð fræðsla og verðlaunin eru ekki af verri endanum! :)
En jæja, nú ætla ég að skella mér í gymmið og hlaupa kannski eina 7km, kannski næ ég 8km eftir þessar spelt-lummur mínar enda bara holl kolvetni sem veita súper orku :)
Vara vikunnar er klárlega HYDRATE ! :) Bjarki gerði tilraun, því hann hefur ekki trú á dufti í neinu formi svo hann ákvað að taka með sér hydrate á körfuboltaæfingu og gekk bara vel og afkastagetan var mjög góð (enda unnu þeir leikinn og komust áfram í undanúrslit!) og svo á síðustu æfingu ákvað hann að prufa að sleppa að drekka hydrate og þá fékk hann bara magakrampa og þurfti að stöðva leikinn þrisvar sinnum og var alveg ónýtur.... Eins og ég hef alltaf sagt, geðveikur drykkur ;)
Þangað til næst
Kolbrún
Thursday, March 22, 2012
Já það sést bara ágætur munur á einungis 3.3 kílóum, sérstaklega á bumbunni :) - Þyrfti nú samt að skella mér í ljós, en vil helst ekki fá krabbamein svo ég ber á mig sólvörn og tana í Flórída ;) Hlakka til að taka nýja eftirmynd áður en ég fer út :) - En þetta er auðvita lífsstílsbreyting svo ég dett ekkert í sama farið aftur í sumar, það er af og frá :)
Wednesday, March 21, 2012
Góðan daginn
Mig langaði að byrja á því að segja ykkur frá nýja
uppáhaldinu mínu J
Tropical herbó sjeik blandaður í 250ml kókosvatn með blönduðum frosnum ávöxtum
(jarðaber, banani, bláber og ananas), 2msk auka prótein og 2msk hörfræjaolía ! J Þetta er alveg
toppurinn og frábært að byrja daginn á kókosvatni með nauðsynlegum söltum sem
líkaminn þarf eftir þurrkinn yfir nóttina! Ásamt öllum þeim næringarefnum sem
líkaminn þarf til að koma meltingunni af stað eftir sveltið yfir nóttina í herbóduftinu,
prótein til að finna fyrir saðsemi og hollri fitu í hörfræjaolíunni til að
smyrja liðina og brenna fitunni J
Ég hafði áður alltaf verið í vandamáli með að finna eitthvað
gott til að blanda Tropical sjeikinn útí því ekki bragðast hann vel í mjólk, en
nú hef ég fundið þessa glæsilegu samsetningu sem slær næstum því öllum hinum
við og er frábær tilbreyting J
Bjarki segir að ég líti út eins og Sjóðríkur Seiðkarl, þar
sem ég er alltaf að drullumalla eitthvað nýtt J
- Klárlega framandi og freistandi en þó ekki flókið líkt og réttir Yasminar
Olsen sem innihalda 100 kryddtegundir J
Nú er prófatörnin að fara að hefjast… sem þýðir, stór verkefnaskil,
ritgerðir, endalaus lestur og fleiri skemmtilegheit. Það er aldeilis pressa á
okkur Bjarka þar sem 1 fall þýðir engin námslán = engin Flórída ferð L Bjarki er einnig að
útskrifast með Bs-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði, duglegur strákurinn J
Við höfum ákveðið að senda Anton norður um páskana svo hann
geti átt notarlegar stundir með ömmum sínum og öfum í staðin fyrir að hanga yfir leiðinlegum
lesandi foreldrum sem gera aldrei neitt skemmtilegt. Við Bjarki ákváðum þó að
kaupa okkur saman 1 páskaegg til að gleyma ekki að halda páskadaginn hátíðlegan
J
Flórídaferðin er svo 24.maí og Bjarki er eiginlega bara orðinn
pirraður honum hlakkar of mikið til! Við erum búin að leigja okkur blæjubíl til
að keyra til Jacksonville og heimsækja Ebbu frænku J Síðan verður auðvita verslað,
farið í vatnsleikjagarða og eldað lífrænt ræktaðan mat! (Mæli með að fólk horfi
á myndina Food Inc!)
En annars er ekkert mikið að frétta af okkur. Ég kláraði
weight loss námskeið á vegum herbalife 13 mars og það gekk bara ágætlega J Vann þó ekki! Fyrsta
sætið gekk heim með 70 þúsund krónur í beinhörðum seðlum eftir að hafa misst
11kg á 8 vikum! Það er ótrúlegur árangur! Ég missti 3,3 kg, 21cm og 2,3% fitu
sem ég tel bara skítsæmilegt meðað við hvað ég leyfði mér mikið! Sem var
auðvita alltof mikið! Fjarþjálfarinn minn spurði alltaf hvort það væri 3. í
nammidegi? Því ég tók alltaf mínar hefðbundnu helgar þar sem var sukkað frá
föstudegi til sunnudags. En það gengur náttúrulega ekki ef maður vill sjá
einhvern árangur. Ég þakka þó fiberbond ("svindl" töflunum) fyrir að ekki fór verr! J
Þó að ég sé kannski ekki búin að missa mörg kíló þá sé ég
ótrúlegan árangur í ræktinni! Fyrir 8 vikum síðan tók ég 10x8x5 armbeygjur og
dó næstum því – nú er ég að taka fyrst 35kg í bekk og svo 22x22x22 armbeygjur
og er bara hress J -
Þetta er það skemmtilega við þetta allt saman! - Auk þess er þetta lífsstílsbreyting - "góðir hluti gerast hægt" er gömul vísa sem aldrei er of oft kveðin J
Skellti líka Hydrate í brúsann og hljóp 6km á sunnudaginn
síðasta, get alltaf hlaupið lengur og lengur eftir hvern sopa af þessum frábæra
íþróttadrykk – no lie J
En jæja, þið verðið að afsaka málfræði- og
stafsetningavillur! Ég er einmitt á leið á bókasafnið til að lesa mér til um
íslenska orð- og beygingarmyndun og síðan á lyftingar og brennslu æfingu J
Fer í vigtun og eftirfylgni á föstudaginn, læt vita hvernig
gengur, ásamt því að skella kannski inn einhverjum uppskriftum J Endilega skoðið
herbalife vörurnar sem ég setti inn hérna hægra meginn á síðunni, þetta eru
aðal vörurnar sem ég nota og virka vel J
Þangað til næst
Kolbrún
Subscribe to:
Posts (Atom)


