Góðan daginn
Mig langaði að byrja á því að segja ykkur frá nýja
uppáhaldinu mínu J
Tropical herbó sjeik blandaður í 250ml kókosvatn með blönduðum frosnum ávöxtum
(jarðaber, banani, bláber og ananas), 2msk auka prótein og 2msk hörfræjaolía ! J Þetta er alveg
toppurinn og frábært að byrja daginn á kókosvatni með nauðsynlegum söltum sem
líkaminn þarf eftir þurrkinn yfir nóttina! Ásamt öllum þeim næringarefnum sem
líkaminn þarf til að koma meltingunni af stað eftir sveltið yfir nóttina í herbóduftinu,
prótein til að finna fyrir saðsemi og hollri fitu í hörfræjaolíunni til að
smyrja liðina og brenna fitunni J
Ég hafði áður alltaf verið í vandamáli með að finna eitthvað
gott til að blanda Tropical sjeikinn útí því ekki bragðast hann vel í mjólk, en
nú hef ég fundið þessa glæsilegu samsetningu sem slær næstum því öllum hinum
við og er frábær tilbreyting J
Bjarki segir að ég líti út eins og Sjóðríkur Seiðkarl, þar
sem ég er alltaf að drullumalla eitthvað nýtt J
- Klárlega framandi og freistandi en þó ekki flókið líkt og réttir Yasminar
Olsen sem innihalda 100 kryddtegundir J
Nú er prófatörnin að fara að hefjast… sem þýðir, stór verkefnaskil,
ritgerðir, endalaus lestur og fleiri skemmtilegheit. Það er aldeilis pressa á
okkur Bjarka þar sem 1 fall þýðir engin námslán = engin Flórída ferð L Bjarki er einnig að
útskrifast með Bs-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði, duglegur strákurinn J
Við höfum ákveðið að senda Anton norður um páskana svo hann
geti átt notarlegar stundir með ömmum sínum og öfum í staðin fyrir að hanga yfir leiðinlegum
lesandi foreldrum sem gera aldrei neitt skemmtilegt. Við Bjarki ákváðum þó að
kaupa okkur saman 1 páskaegg til að gleyma ekki að halda páskadaginn hátíðlegan
J
Flórídaferðin er svo 24.maí og Bjarki er eiginlega bara orðinn
pirraður honum hlakkar of mikið til! Við erum búin að leigja okkur blæjubíl til
að keyra til Jacksonville og heimsækja Ebbu frænku J Síðan verður auðvita verslað,
farið í vatnsleikjagarða og eldað lífrænt ræktaðan mat! (Mæli með að fólk horfi
á myndina Food Inc!)
En annars er ekkert mikið að frétta af okkur. Ég kláraði
weight loss námskeið á vegum herbalife 13 mars og það gekk bara ágætlega J Vann þó ekki! Fyrsta
sætið gekk heim með 70 þúsund krónur í beinhörðum seðlum eftir að hafa misst
11kg á 8 vikum! Það er ótrúlegur árangur! Ég missti 3,3 kg, 21cm og 2,3% fitu
sem ég tel bara skítsæmilegt meðað við hvað ég leyfði mér mikið! Sem var
auðvita alltof mikið! Fjarþjálfarinn minn spurði alltaf hvort það væri 3. í
nammidegi? Því ég tók alltaf mínar hefðbundnu helgar þar sem var sukkað frá
föstudegi til sunnudags. En það gengur náttúrulega ekki ef maður vill sjá
einhvern árangur. Ég þakka þó fiberbond ("svindl" töflunum) fyrir að ekki fór verr! J
Þó að ég sé kannski ekki búin að missa mörg kíló þá sé ég
ótrúlegan árangur í ræktinni! Fyrir 8 vikum síðan tók ég 10x8x5 armbeygjur og
dó næstum því – nú er ég að taka fyrst 35kg í bekk og svo 22x22x22 armbeygjur
og er bara hress J -
Þetta er það skemmtilega við þetta allt saman! - Auk þess er þetta lífsstílsbreyting - "góðir hluti gerast hægt" er gömul vísa sem aldrei er of oft kveðin J
Skellti líka Hydrate í brúsann og hljóp 6km á sunnudaginn
síðasta, get alltaf hlaupið lengur og lengur eftir hvern sopa af þessum frábæra
íþróttadrykk – no lie J
En jæja, þið verðið að afsaka málfræði- og
stafsetningavillur! Ég er einmitt á leið á bókasafnið til að lesa mér til um
íslenska orð- og beygingarmyndun og síðan á lyftingar og brennslu æfingu J
Fer í vigtun og eftirfylgni á föstudaginn, læt vita hvernig
gengur, ásamt því að skella kannski inn einhverjum uppskriftum J Endilega skoðið
herbalife vörurnar sem ég setti inn hérna hægra meginn á síðunni, þetta eru
aðal vörurnar sem ég nota og virka vel J
Þangað til næst
Kolbrún