Sunday, March 25, 2012

Einmitt það sem ég ætla að fara að gera á þessum fallega sunnudegi :)

Ég ELSKA sunnudaga :) Þá byrjar hollustan aftur eftir sukkið í gær og þá líður manni svo vel með sjálfan sig :) Ekkert er líka betra en próteinbættu spelt-lummurnar mínar með sykurlausri sultu í morgunsárið :) Ég finn þvílíkan mun á mér og vigtinni eftir að ég hætti að neyta mjólkurvara - skipti mjólkinni út fyrir sojamjólk og rísmjólk og er mun hressari og vigtin fer mun hraðar niðurá við :) Missti 1 kg í síðustu viku, fékk að vita það í eftirfylgninni á föstudaginn - ég lofaði víst að láta ykkur vita :) 

Ég vil líka minna á það að ég býð viðskiptavinum mínum uppá 100% eftirfylgni ! Ég bý til matarprógram , æfingaprógram, fer yfir hvernig á að nota Herbalife vörurnar og sendi uppskriftir og fræðslubæklinga :) Fyrir borgarfólkið býð ég einnig uppá mælingu, vigtun og fituprósentu mælingu :) 

Mér finnst þetta sjálfri svo rosalega spennandi að fá tækifæri til að hjálpa öðrum á meðan ég vinn í sjálfri mér og deila öllu því sem ég er búin að læra :) 

Minni á Weight loss námskeiðið sem byrjar 2.apríl uppí mjódd - þetta er sjúklega góð fræðsla og verðlaunin eru ekki af verri endanum! :)

En jæja, nú ætla ég að skella mér í gymmið og hlaupa kannski eina 7km, kannski næ ég 8km eftir þessar spelt-lummur mínar enda bara holl kolvetni sem veita súper orku :)

Vara vikunnar er klárlega HYDRATE ! :) Bjarki gerði tilraun, því hann hefur ekki trú á dufti í neinu formi svo hann ákvað að taka með sér hydrate á körfuboltaæfingu og gekk bara vel og afkastagetan var mjög góð (enda unnu þeir leikinn og komust áfram í undanúrslit!) og svo á síðustu æfingu ákvað hann að prufa að sleppa að drekka hydrate og þá fékk hann bara magakrampa og þurfti að stöðva leikinn þrisvar sinnum og var alveg ónýtur.... Eins og ég hef alltaf sagt, geðveikur drykkur ;)


Þangað til næst
Kolbrún




Thursday, March 22, 2012

Já það sést bara ágætur munur á einungis 3.3 kílóum, sérstaklega á bumbunni :) - Þyrfti nú samt að skella mér í ljós, en vil helst ekki fá krabbamein svo ég ber á mig sólvörn og tana í Flórída ;) Hlakka til að taka nýja eftirmynd áður en ég fer út :) - En þetta er auðvita lífsstílsbreyting svo ég dett ekkert í sama farið aftur í sumar, það er af og frá :) 

Wednesday, March 21, 2012

Góðan daginn


Mig langaði að byrja á því að segja ykkur frá nýja uppáhaldinu mínu J Tropical herbó sjeik blandaður í 250ml kókosvatn með blönduðum frosnum ávöxtum (jarðaber, banani, bláber og ananas), 2msk auka prótein og 2msk hörfræjaolía ! J Þetta er alveg toppurinn og frábært að byrja daginn á kókosvatni með nauðsynlegum söltum sem líkaminn þarf eftir þurrkinn yfir nóttina! Ásamt öllum þeim næringarefnum sem líkaminn þarf til að koma meltingunni af stað eftir sveltið yfir nóttina í herbóduftinu, prótein til að finna fyrir saðsemi og hollri fitu í hörfræjaolíunni til að smyrja liðina og brenna fitunni J

Ég hafði áður alltaf verið í vandamáli með að finna eitthvað gott til að blanda Tropical sjeikinn útí því ekki bragðast hann vel í mjólk, en nú hef ég fundið þessa glæsilegu samsetningu sem slær næstum því öllum hinum við og er frábær tilbreyting J

Bjarki segir að ég líti út eins og Sjóðríkur Seiðkarl, þar sem ég er alltaf að drullumalla eitthvað nýtt J - Klárlega framandi og freistandi en þó ekki flókið líkt og réttir Yasminar Olsen sem innihalda 100 kryddtegundir J

Nú er prófatörnin að fara að hefjast… sem þýðir, stór verkefnaskil, ritgerðir, endalaus lestur og fleiri skemmtilegheit. Það er aldeilis pressa á okkur Bjarka þar sem 1 fall þýðir engin námslán =  engin Flórída ferð L Bjarki er einnig að útskrifast með Bs-gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði, duglegur strákurinn J

Við höfum ákveðið að senda Anton norður um páskana svo hann geti átt notarlegar stundir með ömmum sínum og öfum í staðin fyrir að hanga yfir leiðinlegum lesandi foreldrum sem gera aldrei neitt skemmtilegt. Við Bjarki ákváðum þó að kaupa okkur saman 1 páskaegg til að gleyma ekki að halda páskadaginn hátíðlegan J

Flórídaferðin er svo 24.maí og Bjarki er eiginlega bara orðinn pirraður honum hlakkar of mikið til! Við erum búin að leigja okkur blæjubíl til að keyra til Jacksonville og heimsækja Ebbu frænku J Síðan verður auðvita verslað, farið í vatnsleikjagarða og eldað lífrænt ræktaðan mat! (Mæli með að fólk horfi á myndina Food Inc!) 

En annars er ekkert mikið að frétta af okkur. Ég kláraði weight loss námskeið á vegum herbalife 13 mars og það gekk bara ágætlega J Vann þó ekki! Fyrsta sætið gekk heim með 70 þúsund krónur í beinhörðum seðlum eftir að hafa misst 11kg á 8 vikum! Það er ótrúlegur árangur! Ég missti 3,3 kg, 21cm og 2,3% fitu sem ég tel bara skítsæmilegt meðað við hvað ég leyfði mér mikið! Sem var auðvita alltof mikið! Fjarþjálfarinn minn spurði alltaf hvort það væri 3. í nammidegi? Því ég tók alltaf mínar hefðbundnu helgar þar sem var sukkað frá föstudegi til sunnudags. En það gengur náttúrulega ekki ef maður vill sjá einhvern árangur. Ég þakka þó fiberbond ("svindl" töflunum) fyrir að ekki fór verr! J

Þó að ég sé kannski ekki búin að missa mörg kíló þá sé ég ótrúlegan árangur í ræktinni! Fyrir 8 vikum síðan tók ég 10x8x5 armbeygjur og dó næstum því – nú er ég að taka fyrst 35kg í bekk og svo 22x22x22 armbeygjur og er bara hress J - Þetta er það skemmtilega við þetta allt saman! - Auk þess er þetta lífsstílsbreyting - "góðir hluti gerast hægt" er gömul vísa sem aldrei er of oft kveðin J

Skellti líka Hydrate í brúsann og hljóp 6km á sunnudaginn síðasta, get alltaf hlaupið lengur og lengur eftir hvern sopa af þessum frábæra íþróttadrykk – no lie J

En jæja, þið verðið að afsaka málfræði- og stafsetningavillur! Ég er einmitt á leið á bókasafnið til að lesa mér til um íslenska orð- og beygingarmyndun og síðan á lyftingar og brennslu æfingu J

Fer í vigtun og eftirfylgni á föstudaginn, læt vita hvernig gengur, ásamt því að skella kannski inn einhverjum uppskriftum J Endilega skoðið herbalife vörurnar sem ég setti inn hérna hægra meginn á síðunni, þetta eru aðal vörurnar sem ég nota og virka vel J

Þangað til næst
Kolbrún

Tuesday, March 20, 2012

Góða og blessaðan daginn!

Mig langar að halda úti þessari flottu síðu sem á eftir að innihalda allar helstu upplýsingar um frábæru manneskjuna mig, vörurnar sem ég er að nota og selja, matarræðið mitt, vikulega pistla um líf mitt og starf :)

Fyrsti almennilegi pistillinn minn mun birtast hér innan skamms :)

Endilega fylgist þið með því það verður alltaf eitthvað í gangi á þessari flottu síðu :)