Niður um 3.5 % fitu á einni viku !! :)
Ég skrapp í vigtun í gær, var voða dugleg, hjólaði úr Eggertsgötunni alveg útað Glæsibæ! :)
Mér fannst ég búin að standa mig svo vel alla vikuna! Þó ég hafi misst mig aðeins á afmælinu mínu, en maður á nú bara afmæli einu sinni á ári! :) Svo ég var þar af leiðandi alveg tilbúin til að taka við -1kg vigtartölunni... en nei... NEI.... það stóð +0.5kg ... og ég bara nei COMMON!.... Leiðbeinandinn minn reyndi að hughreysta mig með því að hrósa mér fyrir að vera búin að missa 3.5% fitu á einni viku! Ég hlustaði ekkert á það, enginn tekur mark á þeirri tölu, ég barðist við tárin og hjólaði grenjandi heim, staðráðin í að panta mér pizzu!...
Þegar heim var komið pantaði ég pizzu, afpantaði, fór í útifötin og skónna, var á leið í 10-11 að kaupa nammi, snéri við, pantaði pizzu, afpantaði - að lokum fékk ég mér próteinbar og fór að sofa, virkilega reið við líkamann minn fyrir að vera svona leiðinlegur við mig!
En sú vitleysa!... Ég vaknaði með uppljómun!... Hvað er eiginlega að mér?... Er ég búin að gleyma öllu sem sagt er um að vöðvar séu þyngri en fita? ... Er ég búin að gleyma að vöðvar brenna fitunni? ... Er ég búin að gleyma hvernig ég reif í lóðin eins og vitleysingur alla vikuna, þar til vinstri öxlin sagði STOPP NÚ? Er ég búin að gleyma að ég fór í 90mín páskaspinning sem hefur greinilega skilað sér í massívari lærvöðvum og að vinstra hnéið sagði "guð sé lof að líkamsræktarkortið er útrunnið"?
Gleymt er þegar gleypt er
Nú hætti ég þessu rugli, býð vöðvana mína velkomna og bið þá endilega að dvelja sem lengst þó þeir ýti tölunni á vigtinni upp um stund.
Nú er ég samt að fara í 1 og 1/2 vikna pásu í ræktinni þar til ég byrja á námskeiði. Þá verður matarræðið að vera 100%. Ég er búin að setja saman þriggja vikna plan af flottu matarræðið sem á að hjálpa mér að ná mínum markmiðum. Inní þessu plani er auðvita sukkdagur sem verður tekinn með stæl á sunnudaginn. Ætla ég þá að fara að grenja þegar vigtin fer upp og fituprósentan hækkar, eftir þann dag? uuu Nei... hvað ætla ég að gera?... HALDA ÁFRAM
Þó að stundarbrjálaði grípi mann af og til þá er maður alltaf svo himinlifandi daginn eftir þegar maður ákvað að breyta rétt :)
Nú verður lærdómurinn keyrður í BOTN með gúrku, te og próteinbör við höndina :)